Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
Davíð Smári: Gaman að byrja þetta með alvöru hvelli
Venni: Honum líður vel og er ekki að fara neitt
Mæta pressulausar inn í tímabilið - „Höfum trú á verkefninu“
„Vorum ekkert sérlega ánægðar með það“
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
   mán 02. mars 2026 14:50
Snæbjört Pálsdóttir
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Eimskip
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari
Mynd: EPA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenska kvennalandsliðið á ærið verkefni fyrir höndum en stelpurnar mæta ríkjandi heimsmeisturum Spánar annað kvöld á Spáni og eiga svo leik gegn nýkrýndum Evrópumeisturum Englands á laugardaginn á Englandi. 

Að því tilefni fengum við Þorstein Halldórsson landsliðsþjálfara í smá spjall. Hvernig leggst þetta stóra verkefni í þig?

„Vel, ég held við séum bara klár í þetta og við erum búin að undirbúa okkur vel og fara yfir alls konar hluti hérna. Leikmenn svo bara á morgun munu gera allt sem þær geta og eiga bara sinn besta leik. Það er okkar markmið að við spilum virkilega vel á morgun og þorum að vera við sjálfar á vellinum.“


Hvernig hefur undirbúningi verið háttað?

„Við erum búin að vera hérna á Spáni síðan á fimmtudag og bara æft vel, mikið fundað og farið yfir alls konar hluti. Við höfum svona reynt bara að undirbúa okkur sem best á allan máta. Bara að leikmenn séu klárir og tilbúnir í þetta og við vitum svona nokkurn veginn hvað við erum og hverjum við erum að fara mæta.“‘

Það verður ekki auðvelt verkefni að mæta spænska liðinu á útivelli. 

„Við megum alveg búast við því að við verðum aðeins undir, við verðum minna með boltann heldur en Spánn. Ég held að við séum ekkert að fara svekkja okkur á því þótt við séum töluvert minna með boltann. Við þurfum bara að verjast vel, við þurfum að vera góð í færslum og öllu því. Síðan bara sóknarlega þurfum við að þora að vera með boltann, þora að framkvæma og þora að halda í hann þegar við höfum tækifæri til og refsa þegar við fáum möguleika á því.

Auðvitað myndum við ekkert hata að fá fullt af föstum leikatriðum og við erum búin að undirbúa það ágætlega og jú, jú auðvitað verða skyndisóknir að einhverju leyti en við þurfum líka að geta haldið smá ró, til að þetta sé ekki of mikill, að við séum ekki of mikið að eltast við boltann.

Hvað er mikilvægast að leggja áherslu fyrir leikmenn þegar þær fara inn í svona stóra leiki?

„Bara hafa trú og hugrekki á því sem þú ert að fara gera. Að þú sért bara þú sjálf inn á vellinum og sért ekkert að efast um eigin gæði og verðleika.“

Viðtalið í heild má finna í spilarnum hér fyrir ofan


Slapp
banner
banner
banner