Fotbolti.net
02.04.15 - 12:40
Arnar Geir Halldórsson

Ajax kaupir Arek Milik (Staðfest)

Marc Overmars, Arek Milik og Edwin van der Sar

Marc Overmars, Arek Milik og Edwin van der Sar

Canon

Mynd: Heimasíða Ajax

Ajax hefur gengið frá kaupum á Arkadiusz Milik frá Bayer Leverkusen.
Milik hefur verið á láni hjá Ajax í vetur og haldið Kolbeini Sigþórssyni á bekknum löngum stundum en Kolbeinn hefur líka verið að glíma við meiðsli.

Hollenska félagið hefur nú ákveðið að nýta sér ákvæði í lánssamningnum sem gerir þeim kleift að kaupa þennan pólska sóknarmann.

Félagsskiptin munu ganga í gegn þegar félagsskiptaglugginn opnar í sumar en Milik gerir fjögurra ára samning við Ajax.

Milik hefur skorað 17 mörk í öllum keppnum fyrir Ajax í vetur og ljóst að samkeppnin um framherjastöðuna verður hörð næstu árin.

Heimild: Ajax

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.