Fotbolti.net
15.11.26 - 12:38
Brynjar Ingi Erluson

Stjarna Barcelona dreymir um Anfield og dáist að Van Dijk

Pau Cubarsi

Pau Cubarsi

Canon

Mynd: EPA

Spænska varnarmanninn Pau Cubarsi dreymir um að spila á Anfield í Meistaradeildinni, en hann segist jafnframt líta mikið upp til Virgil van Dijk, fyrirliða Liverpool.
Cubarsi, sem er talinn einn efnilegasti varnarmaður heims og er þegar farinn að gera tilkall til þess að vera í hópi þeirra bestu, fór um víðan völl í viðtali við Athletic í dag.

Hann ræddi meðal annars HM, Barcelona og ýmislegt annað, en talið barst einnig að ensku úrvalsdeildinni sem hann segist fylgjast vel með. Þar er einn leikvangur sem hann dreymir sérstaklega um að spila á.

„Ég hef alltaf fylgst vel með ensku úrvalsdeildinni og ef ég þyrfti að velja mér uppáhaldsleikvang þá væri það Anfield. Ég væri til í að spila mikilvægan leik í Meistaradeildinni þar. Það hlýtur að vera mögnuð upplifun,“ sagði Spánverjinn.

Cubarsi var einnig spurður út í helstu fyrirmyndir sínar og nefndi tvo fyrrum varnarmenn Barcelona ásamt Virgil van Dijk.

„Fyrirmyndir mínar eru Puyol og Gerard Pique. Ég er hrifinn af báðum gerðum varnarmanna, annars vegar þessum harða varnarmanni og hins vegar þeim sem er meira spilandi. Pique var frábær í að byggja upp sóknir aftan frá, en Puyol var fyrirmynd þegar kom að hugarfari og karakter.“

„Ég hef líka litið mikið upp til Virgil van Dijk undanfarin ár, en svo horfi ég líka mikið á sjálfan mig og greini mína eigin frammistöðu,“
sagði Cubarsi.
Cubarsi lítur mikið upp til Van Dijk

Cubarsi lítur mikið upp til Van Dijk

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.