Fotbolti.net
02.05.26 - 20:35
Brynjar Ingi Erluson

Arteta: Sýndum úr hverjum við erum gerðir

Mikel Arteta

Mikel Arteta

Canon

Mynd: EPA

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, hrósaði liði sínu í hástert eftir frammistöðuna í 3-0 sigrinum á Fulham í dag og sagðist hann hafa séð hungrið sem hann kallaði eftir fyrir leikinn.
England: Gyökeres allt í öllu og Arsenal með sex stiga forystu
TENGT EFNI

England: Gyökeres allt í öllu og Arsenal með sex stiga forystu

Frammistaðan hjá Arsenal var nánast upp á tíu og verður erfitt að sjá liðið klikka í titilbaráttunni gegn Manchester City.

Arteta breytti liðinu aðeins enda spilaði Arsenal við Atlético Madríd í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í miðri viku og að mæta sterku liði Fulham sem hefur átt mjög gott tímabil.

„Ég er ótrúlega ánægður í dag. Þetta var erfiður leikur að spila því við komum til baka frá Madríd mjög seint á fimmtudag og gáfum svo mikið í þann leik og síðan þurftum við að spila hér gegn Fulham sem er í góðu formi.“

„Mér fannst liðið spila stórkostlegan leik. Við vorum með yfirráð og sýndum hungrið sem við höfðum rætt fyrir leikinn. Við eigum möguleika á að vinna tvær stórar keppnir og erum bara nokkrum leikjum frá því afreki. Strákarnir finna þau forréttindi að vera í þessari stöðu og í dag sýndu úr hverju við erum gerðir,“
sagði Arteta.

Arteta var sérstaklega ánægður með hávaðann í stuðningsmönnum og segir hann mikilvægt að halda áfram að skapa spennuþrungið andrúmsloft til að koma titlinum yfir línuna.

„Það er akkúrat sem við þurfum. Ef við getum skapað þessa samvirkni milli leikmanna, aðgerða og stuðningsmanna þá breytumst við í einn svakalegan mótherja.“

Saka er allur að koma til eftir að hafa glímt við meiðsli. Hann var með mark og stoðsendingu í dag.

„Þetta var enn eitt skrefið hjá honum. Við þurfum að fara varlega með hann, en í þessum leik mátti sjá hvað hann er fær um.“

Myles Lewis-Skelly var fastamaður í liði Arsenal á síðustu leiktíð, en ekki fengið jafn mörg tækifæri til að sanna sig á þessu tímabili.

„Hann hefur hæfileikann að spila í hverri einustu stöðu. Hann er svo hæfileikaríkur og þurft að sýna hógværð og bíða eftir tækifærinu sem er alls ekki auðvelt eftir frábært síðasta tímabil, en hann var verðlaunaður fyrir þolinmæðina í dag,“ sagði Arteta í lokin.
Bukayo Saka átti frábæran leik

Bukayo Saka átti frábæran leik

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.