Fotbolti.net
02.05.26 - 18:28
Brynjar Ingi Erluson

England: Gyökeres allt í öllu og Arsenal með sex stiga forystu

Viktor Gyökeres og Bukayo Saka náðu góðri tengingu gegn Fulham

Viktor Gyökeres og Bukayo Saka náðu góðri tengingu gegn Fulham

Canon

Mynd: EPA

Arsenal 3 - 0 Fulham
1-0 Viktor Gyokeres ('9 )
2-0 Bukayo Saka ('40 )
3-0 Viktor Gyokeres ('45 )
Arsenal er komið með sex stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar en liðið vann öruggan 3-0 sigur á Fulham á Emirates-leikvanginum í kvöld þar sem Viktor Gyökeres átti stórleik með tveimur mörkum og einni stoðsendingu.

Svíinn var ekki lengi að koma Arsenal yfir. Hann skoraði fyrra mark sitt á 9. mínútu eftir laglega sendingu frá Bukayo Saka frá hægri vængnum.

Frammistaðan var algerlega stórkostleg hjá Arsenal í fyrri hálfleiknum. Saka gerði annað markið á 40. mínútu þar sem Gyökeres endurgjaldaði greiðann. Saka skoraði með laglegu skoti á nærstöngina og forystan komin í tvö mörk.

Á lokamínútum uppbótartíma fyrri hálfleiks gerði Gyökeres annað markið með skalla yfir Leno eftir fyrirgjöf Leandro Trossard. Tvö alvöru framherjamörk frá Gyökeres og Arsenal með algera yfirburði. Þetta var 21. mark Gyökeres í öllum keppnum sem er á sínu fyrsta tímabili með Arsenal.

Arsenal-menn hafa eflaust verið vonsviknir með síðari hálfleikinn, enda gæti úrvalsdeildin ráðist á markatölu. Þeir fengu færin til þess að bæta við mörkum.

Gyökeres klúðraði dauðafæri til að fullkomna þrennuna og þá átti Riccardo Calafiori skalla sem fór í hausinn á Bernd Leno og í þverslá.

Engu að síður góð frammistaða hjá Arsenal sem er komið í mjög góða stöðu um Englandsmeistaratitilinn. Liðið er með 76 stig eða sex stiga forystu á Manchester City sem á þó tvo leik til góða gegn Everton á mánudag og síðan Crystal Palace síðar í þessum mánuði.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City3+59
2Arsenal3+59
3Hull City3+37
4Chelsea3+16
5Brentford3+35
6Liverpool3+25
7Newcastle3+25
8Everton3+25
9Leeds3+15
10Brighton3+34
11Man Utd3+14
12Sunderland304
13Crystal Palace3-43
14Ipswich Town3-43
15Bournemouth3-12
16Nott. Forest3-12
17Aston Villa3-51
18Tottenham3-51
19Fulham3-30
20Coventry3-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.