Fotbolti.net
02.05.26 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Orri Steinn: Er búinn að hlusta á þessa vitleysu frá því í 4. flokki

Orri Steinn og Óskar Hafn með Gróttu tímabilið 2019.

Orri Steinn og Óskar Hafn með Gróttu tímabilið 2019.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

KR heimsækir Val klukkan 19:15 í kvöld í 5. umferð Bestu deildarinnar. KR er á toppi deildarinnar með fullt hús stiga fyrir leikinn en Valur hefur unnið þrjá leiki í röð og er með níu stig.

Fótbolti.net ræddi við Orra Stein Óskarsson, framherja Real Sociedad, en hann er stuðningsmaður KR liðsins þar sem faðir hans, Óskar Hrafn Þorvaldsson er þjálfari.
Orri Steinn: Pabbi heilaþvoði mig á góðan hátt
TENGT EFNI

Orri Steinn: Pabbi heilaþvoði mig á góðan hátt

„Það er búið að vera geggjað að fylgjast með þeim og ég er mjög ánægður með byrjunina hjá KR og ánægður með pabba. Það er skemmtilegt að fylgjast með liðinu og skemmtilegt að fylgjast með honum í viðtölunum. Maður hefur fengið að kynnast þessu nóg, hann er skemmtikraftur þessi gæi og ég hef bara gaman af honum," segir Orri sem fylgist vel með KR og horfir á alla leiki þegar tækifæri gefst og er ánægður með sóknaboltann sem liðið spilar.

Talandi um viðtölin hjá pabba þínum, ertu búinn að fá Theodore Roosevelt ræðuna beint í æð? Orri hló áður en hann svaraði.

„Ég sá það reyndar áðan, þetta var helvíti gott. Ég er búinn að hlusta á þessa vitleysu frá því að hann var að þjálfa mig í 4. flokki, ég hef heyrt þetta allt maður og þú þarft ekki að segja mér frá neinu," segir Orri Steinn. Nýjasta viðtal Fótbolta.net við Óskar má nálgast í spilaranum hér neðst í greininni.
Orri Steinn: Er búinn að hlusta á þessa vitleysu frá því í 4. flokki
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Óskar Hrafn: Hef lítinn sem engan smekk fyrir Val

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.12+3534
2KR12+1528
3Fram11+523
4Breiðablik11+919
5Valur12-416
6ÍA11-515
7Keflavík11-712
8Stjarnan12-511
9ÍBV11-511
10KA11-610
11Þór11-197
12FH11-136
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.