Fotbolti.net
02.05.26 - 22:48
Alexander Tonini

Stefán Árni: Unun að fá að deila velli með honum

Auglýsing
Stefán Árni: Unun að fá að deila velli með honum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hinn stórskemmtilegi leikmaður Stefán Árni Geirsson skoraði tvívegis í 4-1 sigri KR gegn Val á Hlíðarenda í kvöld. Hann kom inn í byrjunarliðið í stað Eiðs Gauta Sæbjörnssonar sem varð fyrir meiðslum.

„Mér fannst ég koma vel inn í þetta og tengja spilið ágætlega. Það eru einhverjir hlutir sem ég hefði viljað gera betur en ég er mjög ánægður," segir Stefán um sína frammistöðu.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 4 KR
Hann og Aron Sigurðarson voru að ná vel saman.

„Það er unun að fá að deila velli með honum. Þetta gerist bara einhvernveginn þegar maður er í kringum hann, gæðin leka af honum."

Í viðtalinu ræðir Stefán um mörkin sín og nánar um það hvernig gekk að fylla skarð Eiðs Gauta.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.