„Ég er mjög spennt. Þetta eru síðustu tveir leikirnir á tímabilinu hjá mér og það er mikill spenningur," sagði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir í samtali við Fótbolta.net í dag.
Framundan hjá íslenska kvennalandsliðinu eru leikir gegn Úkraínu og Spáni. Fyrst er það leikur gegn Úkraínu í Póllandi en stelpurnar komu saman í gær og hófu undirbúning fyrir leikinn í Kraká í morgun.
Framundan hjá íslenska kvennalandsliðinu eru leikir gegn Úkraínu og Spáni. Fyrst er það leikur gegn Úkraínu í Póllandi en stelpurnar komu saman í gær og hófu undirbúning fyrir leikinn í Kraká í morgun.
„Það er alltaf jafngaman að hitta hópinn og þetta er úrslitaleikur sem við erum að fara í. Ég held að við verðum að leggja þetta upp sem úrslitaleik. Enska liðið og spænska liðið eru í sérflokki og við verðum að ná þessu þriðja sæti."
„Við þurfum að vinna þennan leik og ná í þetta þriðja sæti. Þetta er gott lið með mikið af styrkleikum sem við verðum að loka á."
Lítið þið fyrirfram á að þið séuð betri en þær?
„Já, mér finnst við betri en þær. Við viljum hafa boltann og loka á skyndisóknir hjá þeim. Við viljum gera betur á síðasta þriðjungi."
Spennt að vera enn sterkari á næsta tímabili
Karólína var að klára sitt fyrsta tímabil með stórliðinu Inter á Ítalíu en það tímabil var mikið upp og niður.
„Mikið upp og niður persónulega hjá mér. Ég var að meiðast inn á milli, lítil meiðsli og ég var ekki lengi til baka en þetta setti strik í reikninginn. Inn á milli fannst mér ég gera vel. Það kom mér á óvart hvað þetta er gott lið sem ég er í og deildin er mjög góð. Borgin er æðisleg og ég er er spennt að vera enn sterkari á næsta tímabili," sagði Karólína Lea.
Hún er ánægð í Mílanó. „Það er helvíti næs. Ég get sagt þér það. Ég er samt fegin að vera ekki í Mílanó núna því þar eru 36 gráður eða eitthvað."
Karólína er ánægð með lífið á Ítalíu eftir dvöl í Þýskalandi með Bayer Leverkusen og Bayern München.
„Tungumálið er ekki alveg komið en frá því ég var í Þýskalandi er þetta aðeins öðruvísi. Ég held að það sé smá Ítali í mér. Þeir eru voða slakir," sagði Karólína og brosti.
Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.






















