Fotbolti.net
08.11.26 - 17:01
Brynjar Ingi Erluson

Benoný áfram í enska bikarnum eftir dramatíska endurkomu - Arnór byrjaði í jafntefli

Benoný er kominn áfram í næstu umferð enska bikarsins

Benoný er kominn áfram í næstu umferð enska bikarsins

Canon

Mynd: Stockport County

Benoný Breki Andrésson og félagar hans í Stockport County eru komnir áfram í aðra umferð enska bikarsins eftir dramatískan 3-2 sigur á Cray Wanderers í dag.
Framherjinn var í byrjunarliði Stockport gegn Wanderers, sem leikur í utandeildinni.

Stockport lenti í miklum vandræðum eftir hálftíma leik þegar Luca Ashby-Hammond fékk að líta rauða spjaldið og liðið þurfti því að leika manni færri það sem eftir lifði leiks.

Útlitið var orðið dökkt í hálfleik, en Wanderers var þá með tveggja marka forystu. Benoný var tekinn af velli í leikhléinu ásamt öðrum leikmanni.

Stockport sýndi hins vegar mikinn karakter í síðari hálfleik og náði að jafna metin þrátt fyrir að vera manni færri. Sigurmarkið kom síðan úr vítaspyrnu í framlengingu og bikarævintýri Stockport lifir því enn góðu lífi.

Arnór Sigurðsson var í byrjunarliði Kalamata sem gerði 1-1 jafntefli gegn Asteras Tripoli í grísku úrvalsdeildinni.

Arnór lék um 80 mínútur fyrir Kalamata, sem hefur farið ágætlega af stað sem nýliði í deildinni. Liðið situr í áttunda sæti með tólf stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.