Fotbolti.net
02.07.15 - 06:00
Elvar Geir Magnússon

Negredo kominn í eigu Valencia (Staðfest)

Negredo kominn í eigu Valencia (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur staðfest að Alvaro Negredo sé endanlega orðinn leikmaður Valencia.

Negredo var neðarlega í goggunarröðinni hjá City og var lánaður á Mestalla leikvanginn á síðustu leiktíð.
Samkomulagið fól í sér að Valencia átti forkaupsrétt á leikmanninum sem félagið nýtti sér og er þessi 29 ára sóknarmaður því kominn í eigu þess.

Negredo á að baki 21 leik fyr­ir spænska landsliðið en hann hef­ur gert 10 mörk í þeim leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.