Fotbolti.net
02.07.26 - 10:25
Elvar Geir Magnússon

Neitar að spila fyrir þjóð sína meðan hann þjálfar

Gueye og Thiaw faðmast ekki í dag.

Gueye og Thiaw faðmast ekki í dag.

Canon

Mynd: EPA

Senegalski miðjumaðurinn Pape Gueye segist ekki ætla að spila aftur fyrir landsliðið á meðan núverandi landsliðsþjálfari, Pape Thiaw, er með stjórnartaumana.

Senegal tapaði á dramatískan hátt gegn Belgíu í 32-liða úrslitum HM í gær eftir að hafa komist í 2-0 í leiknum. Belgar skoruðu tvívegis í lok venjulegs leiktíma og svo sigurmark í framlengingu.
HM: Mögnuð endurkoma í skemmtilegum leik
TENGT EFNI

HM: Mögnuð endurkoma í skemmtilegum leik

Guaeye, sem spilar fyrir Villarreal á Spáni, byrjaði leikin en var tekinn af velli eftir 66 mínútur.

„Svo lengi sem þetta þjálfarateymi er með stjórnartaumana þá verð ég í hléi frá landsliðinu," segir hinn 27 ára gamli Gueye sem hefur spilað 45 leiki fyrir Senegal.

Thiaw hefur stýrt Senegal síðan í desember 2024 og stýrði liðinu í úrslitaleiknum umdeilda í Afríkukeppninni þar sem titillinn var tekinn af liðinu þar sem það gekk af velli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.