Fotbolti.net
02.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Eftirsóttur Emenalo yfirgefur Sádi-Arabíu

Eftirsóttur Emenalo yfirgefur Sádi-Arabíu
Canon

Mynd: EPA

Michael Emenalo er hættur sem framkvæmdastjóri efstu deildar Sádi-Arabíu eftir þrjú viðburðarík ár í starfi.
Boehly fundaði með Emenalo - Fleiri leikmenn á leið til Sádi-Arabíu?
TENGT EFNI

Boehly fundaði með Emenalo - Fleiri leikmenn á leið til Sádi-Arabíu?

Emenalo starfaði meðal annars hjá Chelsea og Mónakó áður en hann var ráðinn til Sádi-Arabíu. Þar leiddi hann sókn deildarinnar á félagaskiptamarkaðinum og samdi við mikið af fótboltastjörnum.

Hann býr því yfir mikið af reynslu úr fótboltaheiminum og er eftirsóttur af félagsliðum víðsvegar um Evrópu sem vilja ráða hann til starfa í sumar.

Emenalo er frá Nígeríu og lék 14 landsleiki fyrir þjóð sína á ferli sínum sem atvinnumaður í fótbolta.

Emenalo segist vera stoltur af vinnunni sem var unnin á dvöl hans í Sádi-Arabíu en að nú sé kominn tími fyrir nýja áskorun.
Eftirsóttur Emenalo yfirgefur Sádi-Arabíu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.