Fotbolti.net
02.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Fertugasta N1 mótið hófst í gær

Fertugasta N1 mótið hófst í gær
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Fertugasta N1 mótið á Akureyri hófst í gær, miðvikudaginn 1. júlí. Stíf dagskrá er á mótinu þar sem tæpir 2000 þátttakendur eru skráðir til leiks.
Myndir og nánari upplýsingar og myndir má finna á vefsíðu mótsins, www.n1motid.is. Hér fyrir neðan má sjá hluta af fréttatilkynningu N1 mótsins.

Mótið hefur fest sig í sessi sem eitt stærsta fótboltamót íslenska sumarsins þar sem krakkar og fjölskyldur koma alls staðar af landinu til að taka þátt í fjörinu.

Frá því að fyrsta mótið fór fram 1987 hafa tugþúsundir barna komið saman á Akureyri, keppt fyrir sitt félag, eignast vini og skapað minningar sem margir búa að alla ævi.

Fyrsta mótið fór fram árið 1987 þegar fimmtán lið frá átta félögum mættu til leiks. Síðan þá hefur mótið vaxið ár frá ári og undanfarin ár hafa um 200 lið frá um 40 félögum tekið þátt. Keppendur eru á bilinu 1.700–1.800 og á aðeins fjórum dögum eru leiknir hátt í eitt þúsund leikir. Mikillar spennu gætir fyrir mótið hjá þátttakendum og fjölskyldum, þá bæði fyrir samverunni, leikjum og ferðalaginu norður.

Haukur Örn Brink, leikmaður Stjörnunnar í Bestu deildinni, tók þátt í mótinu sem barn. Liðinu hans gekk ekki vel og tapaði öllum leikjunum sínum. Samt eru minningarnar frá ferðinni góðar.

„Ég fattaði hvað maður var heppinn að fá að fara í þessa ferð með vinum sínum," segir Haukur.

„Maður lærir að vinna og maður lærir líka að tapa. En það sem situr helst eftir er tíminn með vinunum. Ég myndi ráðleggja öllum sem eru að fara núna að njóta stundarinnar, því svona tækifæri koma ekki oft."

Haukur var ekki í A-liði þegar hann tók þátt í mótinu en hefur síðan náð alla leið í efstu deild. Ljóst er að saga leikmanns á einum tímapunkti segir lítið um hvert leiðin getur legið.

Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, tók þátt í Esso-mótinu, eins og það hét þá, með ÍR árin 1990 og 1991. Þá sendi félagið aðeins tvö lið til leiks. Í dag snýr hann aftur á mótið sem foreldri.

„Það er alltaf jafn gaman að koma aftur," segir Halldór Benjamín.

Þannig hefur N1 mótið tengt saman kynslóðir. Börn sem eitt sinn komu norður með liðinu sínu snúa aftur mörgum árum síðar sem foreldrar, þjálfarar, sjálfboðaliðar eða stuðningsfólk.
Fertugasta N1 mótið hófst í gær
Canon

Mynd: Sigurður Svansson

Fertugasta N1 mótið hófst í gær
Canon

Mynd: N1 mótið

Fertugasta N1 mótið hófst í gær
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Fannar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.