Everton og Man Utd skoða sama markvörð

Darlow lék 38 leiki á þremur árum hjá Leeds, þar af 24 á síðustu leiktíð.

Mynd: EPA

Sky Sports greinir frá því að Manchester United og Everton séu að skoða sama markvörð.

TENGT EFNI
Fjórði markvörður Forest orðaður við Man Utd
Bæði félög hafa áhuga á Karl Darlow sem er falur á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Leeds United rann út.
Darlow er með samningstilboð frá Leeds á borðinu en ætlar að líta í kringum sig áður en hann skrifar undir. Hann er 35 ára gamall og spilaði 24 leiki á síðustu leiktíð.
Hann stóð sig vel með Leeds og vill Man Utd fá hann inn sem varamarkvörð fyrir Senne Lammens. Rauðu djöflarnir eru að reyna að selja Altay Bayindir og vilja Darlow til að fylla í skarðið og þá er útlit fyrir að André Onana sé á leið aftur til Trabzonspor í Tyrklandi.
Everton er í leit að markverði til að berjast við Mark Travers um stöðu varamarkmanns fyrir Jordan Pickford.