Hákon Arnar Haraldsson átti hörkuleik fyrir unglingalið FC Kaupmannahafnar í æfingaleik gegn Lyngby.
Hákon Arnar, sem er 17 ára, skoraði þrennu fyrir U19 lið FCK í æfingaleik gegn Lyngby.
Hákon Arnar, sem er 17 ára, skoraði þrennu fyrir U19 lið FCK í æfingaleik gegn Lyngby.
Umboðsmaðurinn Magnús Agnar Magnússon segir frá þessu á samfélagsmiðlinum Twitter og birtir mörkin. Þau má sjá neðst í fréttinni.
Hákon Arnar gekk í raðir FCK frá ÍA fyrir rúmu ári síðan. Hann á landsleiki að baki fyrir U15, U16 og U17 landslið Íslands. Hann var í lokahóp U17 landsliðsins sem spilaði í lokakeppni Evrópumótsins í fyrra.
Hákon Arnar Haraldsson (2003) scored a hat-trick when @FCKobenhavn U19 won @LyngbyBoldklub U19 in a training match. Impressive 🇮🇸⚽️⭐️👌 pic.twitter.com/mGYyrKI1UN
— Magnus Agnar Magnusson (@totalfl) August 2, 2020
Athugasemdir