Alan Hutton fyrrverandi leikmaður Aston Villa segir að þetta sé tíminn fyrir Jack Grealish að fara til Manchester City.
Grealish hefur lengi verið orðaður við City en sögusagnir eru í gangi um að City hafi gert 100 milljón punda tilboð í leikmanninn.
Hutton var í podcast þættinum Football Daily hjá BBC þar sem hann var spurður út í stöðu Grealish.
„Ég sá hann þegar hann var 16 ára að æfa með okkur, maður sá þá að hann var einstakur. Núna er tíminn fyrir hann að fara til liðs sem getur unnið titla og passa inn í þannig lið. Ég held að hann þurfi að fara til Manchester City."
Athugasemdir