Óli Stefán: „Ótrúlega stoltur af þessum strákum og þessu félagi"
Óli eftir leik þegar Selfoss tryggði sér sæti upp í Lengjudeildina

Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Selfoss

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Selfoss

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Selfoss tryggði sér sæti í Lengjudeildinni næsta tímabil með 2-1 sigri gegn KFG í dag á JÁVERK-vellinum. Liðið komst tveimur mörkum yfir en markvörður Selfoss fékk að líta rautt spjald í lok fyrri og KFG skoraði beint úr aukaspyrnunni sem þeir fengu. Einum manni færri náði Selfoss að sigla sigrinum heim. Óli Stefán Flóventsson tók við liðinu eftir fallið úr Lengjudeildinni í fyrra og hefur komið þeim aftur upp.
„Þetta er góð tilfinning, einsog ég sagði við strákana í morgun á fundi. Við erum að uppskera eftir mikla og djúpa vinnu, farið óhefðbundnar leiðir í þessu. Rosalega gaman að sjá þetta koma og skila sér svona, sérstaklega í ljósi aðstæðna, hvernig leikurinn þróaðist. Ótrúlega stoltur af þessum strákum og þessu félagi. Magnað félag."
Rautt spjald á aðalmarkvörðinn og mark beint upp úr aukaspyrnunni eftir það brot var ekki alveg til hags Selfossar en þeir þraukuðu. „Nei, þetta kristallar svolítið sumarið upp, höfum verið að gera okkur svolítið lífið erfitt. Við erum með alveg heljartök á leiknum og fannst svo gaman að horfa á liðið mitt spila, þá kemur upp svona móment. Aðstæður koma og við þurfum að reyna á okkar vinnu. Rosalega gaman "in the end" að sjá vinnuna sem við erum búnir að leggja í skila sér í þessum erfiðum aðstæðum."
Selfoss liðið skilaði góðri frammistöðu en nöfn Brynjars Bergssonar og Rökkva Rafns Agnesarsonar taka kannski aðeins meira en annara. „Ég var að segja við Þorkel (markmannsþjálfara) að hann (Rökkvi) hefur gert svo vel, sérstaklega seinni partinn. Haldið áfram og verið jákvæður, alltaf tilbúinn. Það er svo gott að hann fái að upplifa svona móment með okkur. Það er ekki auðvelt að vera varamarkvörður. Varðandi Brynjar þá hefur hann líka verið í mótlæti í sumar, meiðst mikið og kjálkabrotnað. Ótrúlega gaman að sjá hann upplifa líka bara laun erfiðisins."
„Svo bara allir strákarnir og allt þetta teymi og fólkið í kringum félagið. Ótrúlega gaman að fá að upplifa þessa stund."
Tímabil Selfoss er þó ekki lokið, það er strax undanúrslita leikur gegn Álftanes á þriðjudaginn í Gatoradebikarnum. „Það er alveg hægt að fagna vel og innilega með augun á næsta verkefni og við gerum það bara á réttum forsendum. Getum núna lagt þessa deild til hliðar og farið að einbeita okkur að hinu verkefninu. Það er mjög spennandi vika framundan, ef við einbeitum okkur og spilum rétt úr spilunum."
Annars er það ljóst að Selfoss spilar í Lengjudeildinni á næsta tímabili. „Já, það verður rosalega skemmtilegt. Þegar ég er ráðinn hérna inn þá var ég svo hrifinn að því að við stjórninn vildi byggja þetta upp á ákveðnum grunni, þannig að við gætum vaxið upp sem félag og farið upp í hærra level með grunninn. Þetta er mikill heimakjarni, það er mikil og góð vinna í yngri flokkum sem er að skila sér. Það skiptir miklu máli að við höldum sjónar á því, núna þarf að staðsetja liðið í deild ofar og það er verkefni sem ég fíla. Held að félagið og samfélagið einsog þú sérð í dag, sé hrifið af svoleiðis verkefni og þau meiga vera stolt af sínu íþróttafólki hérna í dag. Ég er alveg tilbúinn í þá áskorun."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér í spilaranum að ofan.
