12.09.26 - 14:09
Brynjar Ingi Erluson
Jakob mikilvægur hjá Hilleröd - Oskar Sverris skoraði í toppslag

Oskar skoraði fyrir Trelleborg í toppslag

Mynd: Guðmundur Svansson

Jakob Gunnar Sigurðsson reyndist danska B-deildarliðinu Hilleröd mikilvægur í 1-0 sigri liðsins á AB í dag.
Jakob er á láni hjá Hilleröd frá Lyngby og lagði upp sigurmarkið fyrir Poul Kallsberg á 11. mínútu.
Gestirnir fengu tækifæri til að jafna á 34. mínútu en Milan Rasmussen brást bogalistin af vítapunktinum. Vont varð verra undir lok hálfleiksins þegar Gabriel Noga fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt.
Það gerði AB enn erfiðara fyrir og liðið tapaði 1-0. Adam Ingi Benediktsson stóð í marki AB en Fannar Berg Gunnólfsson, þjálfari liðsins, var ekki á hliðarlínunni þar sem hann tók út leikbann eftir að hafa fengið rautt spjald gegn Kolding.
Hilleröd er í áttunda sæti með átta stig en AB í næstneðsta sæti með sex stig.
Nóel Atli Arnórsson lék allan leikinn í vörn Álaborgar í 2-2 jafntefli við Hvidovre. Álaborg lék manni færri frá 25. mínútu en náði þrátt fyrir það að jafna tvisvar og bjarga stigi. Liðið er í sjötta sæti með tólf stig.
Oskar Sverrisson var á skotskónum með Trelleborg í 2-1 sigri á Hässleholms IF í sænsku C-deildinni, en hann og Bjarni Mark Antonsson voru báðir í byrjunarliðinu.
Trelleborg er á toppi suðurriðilsins með 42 stig, þremur meira en Hässleholm í öðru sæti.