Fotbolti.net
12.09.26 - 15:11
Snæbjört Pálsdóttir

Byrjunarlið í sögulegum bikarleik: Taylor í markinu og Álfhildur kemur inn

Fyrirliðinn Álfhildur Rósa er klár í slaginn

Fyrirliðinn Álfhildur Rósa er klár í slaginn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn

Nú fer að styttast í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna en Grindavík/Njarðvík og Þróttur eigast við á Laugardalsvelli núna klukkan 16:00. 

Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 0 - 0 Þróttur R.

Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, gerir þrjár breytingar frá 4-1 tapinu gegn Val í síðasta deildarleik.

Taylor Fox tekur stöðu Stephanie Bukovec í markinu og þá koma Birta Birgisdóttir og Júlía Ruth Thasaphong inn í liðið. Santa Sanija Vuskane og Hayden Colson fara á bekkinn.

Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, gerir þá tvær breytingar frá 1-1 jafnteflinu gegn Breiðabliki. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði liðsins, og Björg Gunnlaugsdóttir koma inn fyrir Bríeti Fjólu Bjarnadóttur og Þórdísi Nönnu Ágústsdóttur.

Byrjunarlið Grindavík/Njarðvík

  • 14. Taylor Fox (m)
  • 2. Ellie Coffield
  • 5. Natasha Moraa Anasi
  • 6. Birta Birgisdóttir
  • 12. Hannah McLaughlin
  • 17. Sophia Faith Romine
  • 18. Ása Björg Einarsdóttir
  • 19. Elísa Birta Káradóttir
  • 22. Sigríður Emma F. Jónsdóttir (f)
  • 26. Júlía Ruth Thasaphong
  • 28. Emma Nicole Phillips

Byrjunarlið Þróttur R.

  • 1. Mollee Swift (m)
  • 3. Mist Funadóttir
  • 5. Jelena Tinna Kujundzic
  • 8. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir (f)
  • 10. Katherine Amanda Cousins
  • 11. Björg Gunnlaugsdóttir
  • 14. Sierra Marie Lelii
  • 16. María Eva Eyjólfsdóttir
  • 21. Kayla Marie Rollins
  • 23. Sæunn Björnsdóttir
  • 27. Unnur Dóra Bergsdóttir
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.