Fotbolti.net
02.08.26 - 11:30
Brynjar Ingi Erluson

Annað jafntefli tímabilsins hjá Sveindísi

Annað jafntefli tímabilsins hjá Sveindísi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kvennaboltinn
Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í bandaríska liðinu Angels City gerði 2-2 jafntefli við Kansas City í NWSL-deildinni í nótt.
Íslenska landsliðskonan var á sínum stað í byrjunarliði Angel City en náði sér ekki almennilega á strik.

Taylor Suarez kom gestunum yfir á 14. mínútu. Carina Lageyre þræddi þá laglega sendingu inn fyrir vörnina og Suarez kláraði af yfirvegun.

Heimakonur í Kansas voru þó aðeins tólf mínútur að svara og jafna metin.

Mörkin urðu ekki fleiri og lokatölur 1-1. Angel City er í áttunda sæti með 23 stig en Kansas í því fjórða með 29 stig.

Næsti leikur Angel City er gegn Seattle Reign aðfaranótt 10. ágúst.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.