01.08.26 - 19:03
Brynjar Ingi Erluson
Everton á eftir leikmanni Man Utd

Mynd: Manchester United

Mynd: Manchester United
Everton hefur mikinn áhuga á að fá Ethan Wheatley, leikmann Manchester United.
Þessi tvítugi framherji gæti verið á förum frá United í sumar en Michael Carrick og félagar þurfa að minnka leikmannahópinn fyrir tímabilið.
Wheatley varð 250. leikmaðurinn úr akademíu United til að spila með aðalliðinu þegar hann kom inn af bekknum gegn Sheffield United árið 2024. Alls hefur hann leikið fjóra keppnisleiki fyrir félagið.
Á síðasta tímabili lék hann fyrst á láni með Northampton Town en færði sig yfir til Bradford City í febrúar. Hann skoraði þrjú mörk í 25 leikjum fyrir Northampton en komst ekki á blað hjá Bradford.
Fabrizio Romano segir Everton hafa mikinn áhuga á Wheatley og undirbúa formlegt tilboð sem verður lagt fram á næstu dögum. Þar gefst möguleikinn á fleiri tækifærum í úrvalsdeildinni.
Wheatley á að baki 16 leiki fyrir yngri landslið Englands og hefur skorað í þeim sex mörk.