02.08.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Salah gæti orðið liðsfélagi Onana - Fær hluta af treyjusölunni

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Egypski sóknarmaðurinn Mohamed Salah er með veglegt tilboð frá tyrkneska félaginu Trabzonspor og er talið líklegra að hann endi þar en hjá Besiktas.

TENGT EFNI
Viðræður Besiktas við Salah settar á ís - „Tók raunsæja ákvörðun í stað þess að friða fjöldann“
Salah er 34 ára gamall og hefur verið án félags frá því að ævintýrinu hjá Liverpool lauk í lok júní.
Eftir níu ár sem einn allra besti sóknarmaður heims stendur hann nú á krossgötum. Tyrkland virðist líklegasti áfangastaðurinn en þar hafa fleiri en eitt stórlið reynt að klófesta Egyptann.
Lengi vel stefndi allt í að Salah gengi til liðs við Besiktas. Babb kom hins vegar í bátinn þegar félagið fékk kröfur umboðsmanns hans upp á borðið og dró sig í kjölfarið frá samningaborðinu.
Nú er Trabzonspor mætt til leiks. Tyrkneski blaðamaðurinn Yagiz Sabuncuoglu segir félagið hafa boðið Salah tveggja ára samning.
Umboðsmaðurinn svaraði með gagntilboði þar sem farið er fram á að hann og Salah fái samanlagt 20 til 25 prósent af tekjum vegna treyjusölu og er Trabzonspor sagt tilbúið að ganga að þeirri kröfu.
Ofan á það myndi Salah fá um 17 milljónir evra í árslaun. Ef hann ákveður að semja í Tyrklandi verða þetta ein stærstu félagaskipti í sögu tyrkneska boltans.