Fotbolti.net
02.08.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Kolo Muani fær leyfi til að fara í læknisskoðun

Kolo Muani fær leyfi til að fara í læknisskoðun
Canon

Mynd: EPA

Franski sóknarmaðurinn Randal Kolo Muani hefur fengið leyfi frá Paris Saint-Germain til að ferðast til Tórínó og ganga frá félagaskiptum sínum til Juventus.
Juventus náði samkomulagi við PSG um kaup á Kolo Muani í gær. Ítalska félagið greiðir 38 milljónir evra og allt að tólf milljónir til viðbótar í árangurstengdar greiðslur.

Kolo Muani hefur jafnframt samið við Juventus um persónuleg kjör og mun fá um fimm milljónir evra í árslaun.

Frakkinn hefur fengið grænt ljós frá PSG til að halda til Tórínó og gangast undir læknisskoðun. Að henni lokinni skrifar hann undir fimm ára samning.

Kolo Muani er því á leið aftur til Juventus en hann lék með félaginu síðari hluta tímabilsins 2024-2025 og skoraði tíu mörk í 22 leikjum.

Hann var á láni hjá Tottenham á síðasta tímabili en skoraði aðeins fimm mörk.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.