01.08.26 - 16:30
Ívan Guðjón Baldursson
Everton að kaupa miðjumann frá Arsenal

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Everton er búið að ná samkomulagi við Arsenal um kaup á danska miðjumanninum Christian Nörgaard fyrir 7 milljónir punda. The Athletic greinir frá.
Nörgaard er 32 ára gamall og fékk lítinn spiltíma á einu ári hjá Arsenal, en þar áður var hann fyrirliði Brentford.
Nörgaard kom við sögu í 20 leikjum á síðustu leiktíð, þar af sjö í ensku úrvalsdeildinni er Arsenal tryggði sér langþráðan Englandsmeistaratitil.
Nörgaard fer í læknisskoðun hjá Everton eftir helgi og á að fylla í skarðið fyrir Idrissa Gana Gueye sem er fluttur úr Bítlaborginni.
Hann verður fjórði leikmaðurinn sem Everton fær til sín í sumar eftir Hayden Hackney, Tyrique George og Merlin Röhl.