Fotbolti.net
01.08.26 - 23:30
Brynjar Ingi Erluson

Hetja Norðmanna að snúa aftur til Leipzig

Hetja Norðmanna að snúa aftur til Leipzig
Canon

Mynd: EPA

Norski markvörðurinn Orjan Nyland færist nær þýska félaginu RB Leipzig.
Nyland var stórkostlegur í marki Noregs á heimsmeistaramótinu í sumar og átti stóran þátt í því að liðið komst alla leið í átta liða úrslit.

Samningur hans við Sevilla rann út í sumar og hefur hann legið undir feldi og skoðað næsta skref á ferlinum.

RB Leipzig hefur haft áhuga á Nyland um nokkurt skeið en beið eftir niðurstöðu í máli ungverska markvarðarins Peter Gulacsi.

Gulacsi, sem hefur staðið á milli stanganna hjá Leipzig undanfarin ár, er nú á leið til Villarreal. Brottför hans opnaði dyrnar fyrir viðræður þýska félagsins við Nyland.

Fabrizio Romano segir viðræðurnar langt komnar og samkomulag skammt undan.

Þetta verður í annað sinn sem Nyland gengur til liðs við Leipzig. Félagið fékk hann til sín árið 2022 eftir að Gulacsi og Janis Blaswich meiddust en Norðmaðurinn lék aðeins þrjá leiki og fór aftur að tímabilinu loknu.

Nyland, sem er 35 ára gamall, hefur víða komið við á ferlinum. Hann lék með Aston Villa, Bournemouth, Norwich og Reading á Englandi, Ingolstadt í Þýskalandi og Hödd og Molde í heimalandinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.