Fotbolti.net
02.09.26 - 09:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Höfnuðu hálfri milljón evra frá meisturunum í Daníel Leó

Höfnuðu hálfri milljón evra frá meisturunum í Daníel Leó
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dönsku meistararnir í AGF vilja fá íslenska landsliðsmanninn Daníel Leó Grétarsson í sínar raðir.

AGF lagði fram tilboð sem hljóðaði samkvæmt heimildum Fótbolta.net upp á 500 þúsund evrur en Sönderjyske, félagið sem Daníel er á mála hjá, hafnaði tilboðinu. Í hlekknum hér sést vel hversu mikilvægur Daníel er fyrir Sönderjyske. 500 þúsund evrur eru rúmar 70 milljónir íslenskra króna.
Dönsku meistararnir með augastað á Daníel Leó
TENGT EFNI

Dönsku meistararnir með augastað á Daníel Leó

Daníel er þrítugur örvfættur miðvörður sem er algjör lykilmaður í liði Sönderjyske. Hann kom til félagsins frá Slask Wroclaw sumarið 2023 og er samningsbundinn fram á næsta sumar.

Hjá Sönderjyske er Daníel liðsfélagi Brynjars Inga Bjarnasonar og Rúnars Þórs Sigurgeirssonar. Þeir Mikael Anderson og Tómas Óli Kristjánsson eru leikmenn AGF.

Daníel er lykilmaður í íslenska landsliðinu og á að baki 31 landsleik. Félagaskiptaglugginn í Danmörku lokar í kvöld.
Höfnuðu hálfri milljón evra frá meisturunum í Daníel Leó
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.