02.09.26 - 08:42
Elvar Geir Magnússon
Hætti skyndilega við og gekk frá borði þegar allt var klárt

Balogun var á leið til Everton en það rann út í sandinn rétt fyrir gluggalok.

Mynd: EPA

Chelsea reyndi við Alex Scott.

Mynd: EPA

Chido Obi.

Mynd: EPA

AC Milan lánaði Youssouf Fofana til Sevilla (Staðfest)

Gluggadagurinn var í gær og það gekk ýmislegt á bak við tjöldin. Í slúðurpakkanum er margt áhugavert og einn staðfestur félagaskiptamoli!
Bandaríski sóknarmaðurinn Folarin Balogun (25) hætti skyndilega við að fara til Everton þegar félagið var búið að ganga frá öllu til að kaupa hann frá Mónakó. Eitthvað kom upp í læknisskoðun en þegar það var frágengið var Balogun búinn að skipta um skoðun. (ESPN)
Liverpool reyndi að fá franska hægri bakvörðinn Malo Gusto (23) en náði ekki samkomulagi um lán þar sem Chelsea vildi selja leikmanninn endanlega. (Fabrice Hawkins)
Manchester United gerði árangurslausa tilraun í lok gluggans til að fá bakvörðinn Rayan Ait-Nouri (25) frá grönnunum í Manchester City. (Mirror)
Chelsea reyndi að fá miðjumanninn Alex Scott (23) frá Bournemouth í stað Enzo Fernandez, en Bournemouth hafði engan áhuga á að selja hann í sumar. (Mirror)
Arsenal hafnaði fyrirspurn frá Chelsea varðandi spænska miðjumanninn Martin Zubimendi (27). (Sun)
Manchester United hyggst styrkja vörnina með þremur nýjum mönnum næsta sumar enda er óvissa um framtíð manna á borð við Luke Shaw (31), Harry Maguire (33), Lisandro Martínez (28) og Matthijs de Ligt (27). (Sun)
Sóknarmaðurinn Chido Obi (18) hjá Manchester United hefur mikinn áhuga á að fara á láni til Hollands eða heimalandsins Danmerkur. Í báðum löndum lokar félagaskiptaglugginn ekki fyrr en á miðvikudag og er Feyenoord eitt þeirra félaga sem sýna honum áhuga. (Mirror)
Everton hafði áhuga á að fá bakvörðinn Jordan Teze (26) frá Mónakó en stjórn franska félagsins kom í veg fyrir að hollenski landsliðsmaðurinn fengi að fara. (Nice-Matin)
Enski varnarmaðurinn Fikayo Tomori (28) mun snúa aftur í hópinn hjá þjálfaranum Rúben Amorim hjá AC Milan eftir að hafa hafnað því að yfirgefa ítalska félagið. (Di Marzio)
Undir lok gluggans fór miðjumaðurinn Youssouf Fofana (27) á lán út tímabilið frá AC Milan til spænska liðsins Sevilla. Engin klásúla er varðandi framtíðarkaup. (Staðfest)
Sóknarmaðurinn Cody Gakpo (27) hjá Liverpool átti hreinskilnislegt samtal við stjórn félagsins eftir að hún neitaði að heimila sölu hans til Manchester City. (ED)
Wrexham hefur áhuga á að fá Jamie Vardy (39) sem er án félags. Hollywoodliðið þarf að keppa við brasilíska félagið Sao Paulo og Sheffield Wednesday um enska sóknarmanninn. (TalkSport)
Al-Ittihad og Diriyah í Sádi-Arabíu reyna að fá kantmanninn Leon Bailey (29) frá Aston Villa. (Athletic)