Myndbönd: Berserkir ósáttir við gæsluna á Meistaravöllum - Lögregla kölluð til

Berserkir mætu með trommu í stúkuna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Góð stemning í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Berserkir mætu með trommu í stúkuna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gæsla óskaði eftir aðstoð lögreglu vegna trommu sem Berserkir, stuðningssveit Víkings, var með í stúkunni, en ekki má vera með trommur á vellinum.

Best sótti leikurinn í tólf ár - „Fram úr væntingum"
„Ég vil taka fram að það er ekkert út á starfsmenn KR að setja, þeir sinntu sínu vel. En það var önnur gæsla, einhver leigð gæsla skilst mér, á leiknum sem mér fannst fara vel yfir strikið, gengu fram með offorsi. Það var t.d. gripið í 16 ára dreng og hann dreginn til baka, eitthvað sem var algjör óþarfi og það urðu læti. Gæslan fór að skipta sér að okkur út af trommunni, það var ekkert annað í gangi."
Í myndbandi hér að neðan má heyra að Aron var ósáttur við gæslumanninn sem reyndi að grípa í síma hans.
„Ég var að taka upp, tók allt upp, og einn úr gæslunni reyndi að hrifsa í mig, var væntanlega ósáttur að ég væri að taka upp. Lögreglan var svo kölluð til af gæslunni og gerði eina trommu upptæka, ekkert út á það setja."
„Þetta er held ég fimmta árið í röð sem við í Berserkjum mætum á Meistaravelli, förum inn með trommur en það er svo eitthvað vesen út af því."
„Nei nei, þetta hafði ekki áhrif á okkar upplifun af leiknum. Þetta var mjög gaman og góð stemning á leiknum. Við erum öflugir að fylgja okkar liði í alla leiki og höfum gaman af því."
Trommur eru samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net ekki leyfðar á Meistaravöllum. Aron var spurður hvort hann teldi bestu lausnina vera að koma í veg fyrir að trommann komist inn í stúkuna við innganginn.
„Já, það hljómar eins og einfaldasta lausnin, kemur í veg fyrir allt vesen," segir Aron. Hann var ekki viðstaddur þegar farið var inn með trommuna en skilst að það hafi gengið vel.
Leikurinn í gær endaði með 1-1 jafntefli þar sem bæði mörkin komu í uppbótartíma seinni hálfleiks.
Og einnig svona var gæslan á leiknum,
— Aron Höskuldsson (@AronHoskuldss) September 1, 2026
16 ára strákur sem að þeir rífa í og svo reynt að rífa í símann??????? pic.twitter.com/5RmY1r0cXa
Ég sá fugl úti í garði. Þoli ekki fuglasöng. Löggan er á leiðinni með taser. pic.twitter.com/2HZ2TBcrl9
— Hörður (@horduragustsson) September 1, 2026
Ætla rétt að vona að það sé ekki talið eðlilegt að fá lögguna til að sækja trommu á fótboltaleik. Þá er einn Aftureldingarfan í helvítis brasi á næsta ári í Víkinni. Takk pic.twitter.com/LCMol84ntH
— Hörður (@horduragustsson) September 1, 2026
KR-Vikes
— Aron Höskuldsson (@AronHoskuldss) September 1, 2026
Vesturbæingar það litlir að Lögreglan mætti útaf einni trommu????
Pælið í því pic.twitter.com/8yJ5BCA4Co


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Góð stemning í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
