Fotbolti.net
02.09.26 - 12:32
Elvar Geir Magnússon

Hvaða félög áttu besta gluggann og hver áttu þann versta?

Veskin voru galopin í sumarglugganum.

Veskin voru galopin í sumarglugganum.

Canon

Mynd: Samsett

Glugganum í ensku úrvalsdeildinni hefur verið lokað og Independent er búið að dæma sumargluggann hjá öllum tuttugu félögum deildarinnar með einkunnagjöf.

Enzo Fernandez var dýrasti leikmaður gluggans eftir 125 milljóna punda kaup Manchester City frá Chelsea sem toppaði 120 milljóna punda kaup Liverpool á Bradley Barcola.
1. sæti: Brentford A+
Brentford er með áætlanir um allt, vel skipulagt félag sem er klókt á markaðnum. Brentford átti frábæran glugga og gætu átt ein af bestu kaupunum í miðjumanninum Mamadou Sangare sem kom frá Lens. El Hadji Malick Diouf, Callum Wilson og Jaidon Anthony mættu einnig.

2.-4. sæti: Chelsea A-
Enn meira ógnvekjandi í sóknaraðgerðum sínum eftir komu Morgan Rogers. Markvarðahausverkurinn var lagaður með Emiliano Martínez, Maxence Lacroix er kominn í vörnina og Xabi Alonso er búinn að slípa hópinn niður. Félagið fékk 125 milljónir punda fyrir Enzo Fernandez en vonbrigði að hafa ekki náð að landa Lamine Camara.

2.-4. sæti: Man City A-
Miklar breytingar hafa orðið hjá City og miðjuþrennan Enzo Fernandez, Elliot Anderson og Ayyoub Bouaddi er virkilega spennandi. Það verður þó ekkert grín að fylla skarð Rodri.

2.-4. sæti: Leeds A-
Vilja festa sig í sessi í ensku úrvalsdeildinni og það var risastórt að landa James Trafford í markið. Fengu Harry Wilson, miðvörðinn hæfileikaríka Tarik Muharemovic og reynslu í Pascal Struijk. Hafa styrkt leikmannahópinn af skynsemi og fyllt í réttu skörðin.

5.-8. sæti: Arsenal B+
Breiddin er mikil í flestum stöðum og Englandsmeistararnir bættu við sig Bruno Guimaraes og Ezri Konsa. Félaginu tókst þó ekki að styrkja sóknarleik sinn eins og það vildi og gerði misheppnaðar tilraunir til að ná í Morgan Rogers, Vinicius Junior og Julian Alvarez.

5.-8. sæti: Man Utd B+
Náðu ekki að landa Anderson, Sandro Tonali eða Mateus Fernandes. Hinsvegar komu Carlos Baleba, Andrey Santos og Youri Tielemans. Mun það koma í bakið á liðinu að hafa ekki sótt vinstri bakvörð?

5.-8. sæti: Brighton B+
Félag sem sýnir oft gríðarleg klókindi á markaðnum og alltaf kemur maður í manns stað. Carlos Baleba fór til Manchester United og skilur eftir sig skarð en varnarmaðurinn Luka Vuskovic kom frá Tottenham og spænski miðjumaðurinn Chema Andres sem kom frá Stuttgart virkar ekta 'Brighton kaup'.

5.-8. sæti: Hull City B+
Fóru í mikla vinnu til að hreinsa til í hópnum og styrkja sig fyrir úrvalsdeildina. Miklar breytingar þar sem Nobel Mendy og Konstantinos Tzolakis eru stærstu nöfnin sem komu og liðið fer vel af stað í deildinni.

9.-11. sæti: Liverpool B
Spennandi að fá Bradley Barcola frá PSG en miðsvæðið er enn fáliðað og lítil samkeppni í hægri bakverðinum. Jeremy Jacquet og Ronald Araujo styrkja hjarta varnarinnar, Victor Munoz lítur vel út en það er spurningamerki af hverju félagið fékk ekki örvfættan mann til að koma í stað Mohamed Salah.

9.-11. sæti: Bournemouth B
Héldu hinum hæfileikaríku Alex Scott og Eli Junior Kroupi sem önnur lið girnast. Fengu inn miðvörðinn Antonio Silva en þyrftu aukna breidd til að takast á við aukið leikjaálag með Evrópudeildinni.

9.-11. sæti: Ipswich B
Hafa keypt leikmenn fyrir ofan 170 milljónir punda svo ekki er hægt að saka Ipswich um að vera ekki að reyna. Julio Enciso kemur með sóknarmátt og þá eru spennandi leikmenn á borð við Emersonn, Abdul Fatawu og Exequiel Palacios mættir.

12.-13. sæti: Tottenham B-
Fá A+ fyrir að láta til sín taka í glugganum en nokkuð stefnuleysi dregur þá niður. Veskið hefur verið galopnað eftir vonbrigðin síðustu tímabil. Öflugt að ná inn Mateus Fernandes en spurningamerkin eru mörg. Fengu Tosin Adarabioyo og Mykhailo Mudryk á gluggadeginum.

12.-13. sæti: Coventry B-
Hafa keypt leikmenn fyrir yfir 100 milljónir punda síðan þeir komu upp. Caleb Yirenkyi er spennandi viðbót en markaskorun er líklegt vandamál þó Taiwo Awoniyi gæti fært þeim einhver mörk.

14.-15. sæti: Nottingham Forest C+
Fengu tilboð í Elliot Anderson sem þeir gátu ekki hafnað. Daniel Munoz er einn besti leikmaðurinn í sinni stöðu í deildinni og Xaver Schlager kom á frjálsri sölu. Fróðlegt verður að sjá hverju Oliver Glasner nær úr liðinu.

14.-15. sæti: Sunderland C+
Náði mjög áhugaverðum árangri á síðasta tímabili. Náðu að vinna samkeppni við Crystal Palace um Malick Fofana og fékk Kevin Danso og Juan Riquelme Angulo og kemur ágætlega út úr glugganum.

16.-17. sæti: Newcastle C
Erfiðast af öllu er að dæma gluggann hjá Newcastle. Hver veit hvað mun gerast? Stjörnuleikmenn eins og Tonali, Bruno Guimaraes og Anthony Gordon eru horfnir á braut ásamt stjóranum Eddie Howe. Liðið virkar þó spennandi undir stjórn Matthias Jaissle og hafa bætt við sig mönnum á borð við Nico Gonzalez, Amar Dedic, Lukas Hornicek og Matias Fernandez-Pardo.

16.-17. sæti: Crystal Palace C
Misstu mikilvæga leikmenn á borð við Maxence Lacroix og Daniel Munoz. Skörð sem erfitt er að fylla. Náðu að halda í Jean-Philippe Mateta og Ismaila Sarr og það er plús.

18.-19. sæti: Aston Villa C-
Villa mætir með gjörbreytt lið og lykilmenn undanfarinna ára; Morgan Rogers, Ezri Konsa, Youri Tielemans, Emi Martinez og Ollie Watkins hurfu allir á braut. Framtíðin mun dæma það hvernig þeir sem voru fengnir í staðinn munu koma inn í þetta en það gæti þurft þolinmæði.

18.-19. sæti: Fulham C-
Hafa misst sköpunarmátt með Harry Wilson og Raul Jimenez. Alvaro Arbeloa hefur sótt Spánverja en félagið hefði þurft meira til að losna við hræðslu við falldrauginn.

20. sæti: Everton D
Fengu Jack Grealish aftur en misstu Iliman Ndiaye sem fór til Manchester City. Beto var seldur þar sem þeir bjuggust við að landa Folarin Balogun en hann hætti við á síðustu stundu. Hópurinn er á verri stað en þegar síðasta tímabili lauk.

Heimild: Independent

Mamadou Sangare kom til Brentford.

Mamadou Sangare kom til Brentford.

Canon

Mynd: Brentford

Chelsea keypti Morgan Rogers.

Chelsea keypti Morgan Rogers.

Canon

Mynd: Chelsea

Ayyoub Bouaddi fór til Manchester City.

Ayyoub Bouaddi fór til Manchester City.

Canon

Mynd: Manchester City

Ezri Konsa skrifaði undir á Emirates.

Ezri Konsa skrifaði undir á Emirates.

Canon

Mynd: Arsenal

Carlos Baleba á Old Trafford.

Carlos Baleba á Old Trafford.

Canon

Mynd: Manchester United

Liverpool fékk Victor Munoz.

Liverpool fékk Victor Munoz.

Canon

Mynd: EPA

Mateus Fernandes í treyju Tottenham.

Mateus Fernandes í treyju Tottenham.

Canon

Mynd: Tottenham

Matias Fernandez-Pardo kom til Newcastle á gluggadeginum.

Matias Fernandez-Pardo kom til Newcastle á gluggadeginum.

Canon

Mynd: Newcastle

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.