Fotbolti.net
02.09.26 - 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Úrslitin úr leik G/N og Fram standa óhögguð

Úr leik liðanna í sumar.

Úr leik liðanna í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Kvennaboltinn
Fótbolti.net sagði frá því á mánudag að á borði aga- og úrskurðarnefndar KSÍ væri kæra frá Fram vegna ólöglegrar skýrslu Grindavíkur/Njarðvíkur í leik liðanna í Bestu deild kvenna fyrir tæpum tveimur vikum síðan.

G/N vann leikinn, 4-0 urðu lokatölur en Fram krafðist þess að liðinu yrði dæmdur sigur þar sem G/N var með níu varamenn en uppfyllti ekki þá kröfu að að lágmarki tveir þeirra væru á 2. flokks aldri. Tveir varamenn G/N skoruðu í leiknum, þriðja og fjórða mark leiksins.
Kæra frá Fram á borði aganefndar - Krefjast sigurs í 4-0 tapi
TENGT EFNI

Kæra frá Fram á borði aganefndar - Krefjast sigurs í 4-0 tapi

Það er óumdeilt að G/N var einungis með einn varamann sem gjaldgengur er í 2. flokk en það var vegna mistaka við skýrslugerð.

Aga- og úrskurðarnefnd mat mistökin ekki þess eðlis að þau væru vísvitandi og því standa úrslitin óhögguð.

Í niðurstöðu málsins segir að nefndin að framkvæmdastjóri KSÍ muni taka ákvörðun um hvort G/N verði sektað fyrir brot á reglum sambandsins. Brot á reglunni getur orðið til þess að félag sé sektað um allt að 250 þúsund krónur.

Úr niðurstöðu málsins
Að mati nefndarinnar liggur fyrir að reglur um útfyllingu leikskýrslu voru brotnar af hálfu kærða en nefndin telur ekki unnt að slá því föstu í ljósi atvika allra að þetta hafi verið með vilja gert eða í því skyni að blekkja andstæðing sinn. Samkvæmt gr. 37.1 er það framkvæmdastjóri KSÍ sem tekur ákvörðun um sektir vegna brota á gr. 9.6.1 og því skortir aga- og úrskurðarnefnd heimild til þess að úrskurða um sekt vegna brots kærða á greininni. Með vísan til alls framangreinds er kröfum kæranda hafnað.
Úrslitin úr leik G/N og Fram standa óhögguð
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Úrslitin úr leik G/N og Fram standa óhögguð
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik17+2536
2FH17+2334
3ÍBV17-227
4Stjarnan17+526
5Þróttur R.17-322
6Grindavík/Njarðvík17-522
7Þór/KA17-319
8Fram17-1619
9Víkingur R.17-1217
10Valur17-1217
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.