Fotbolti.net
02.09.26 - 10:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tveir af fjórum taka út bann fyrir norðan

Emil Atlason

Emil Atlason

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þrír leikmenn og einn markmannsþjálfari verða í banni þegar 22. umferðin í Bestu deildinni verður spiluð um komandi helgi.

Emil Atlason, markahæsti leikmaður Stjörnunnar, verður ekki með liðinu gegn ÍBV í leik sem Stjarnan þarf að vinna til að enda í efri hluta deildarinnar.

Adolf Daði Birgisson verður ekki með FH þegar liðið heimsækir Þór eftir að hafa fengið sitt fjórða gula spjald í sumar gegn Keflavík og Bjarni Guðjón Brynjólfsson verður ekki með Þór eftir að hafa fengið rauða spjaldið gegn ÍBV. Bjarni er lánsmaður frá FH.
Frederik tók 21 sekúndu í markspyrnuna - ÍA refsaði grimmilega
TENGT EFNI

Frederik tók 21 sekúndu í markspyrnuna - ÍA refsaði grimmilega

Þá fékk markmannsþjálfarinn Emil Alexander Larsen, sem starfar hjá Val, rauða spjaldið undir lok leiks gegn ÍA. Hann var ósáttur við leiktöfina sem dómarinn Elías Ingi Árnason dæmdi á Frederik Schram í marki Vals og í kjölfarið jafnaði ÍA.

22. umferðin
laugardagur 5. september
16:30 Keflavík-Valur (HS Orku völlurinn)

sunnudagur 6. september
14:00 Víkingur R.-Fram (Víkingsvöllur)
14:00 KA-Breiðablik (Greifavöllurinn)
14:00 Stjarnan-ÍBV (Samsungvöllurinn)
14:00 Þór-FH (VÍS völlurinn)
14:00 ÍA-KR (ELKEM völlurinn)
Adolf Daði Birgisson

Adolf Daði Birgisson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.21+4652
2KR21+2744
3Fram21+1444
4Breiðablik21+330
5Keflavík21-428
6ÍA21-427
7Stjarnan21-827
8Valur21-724
9FH21-1121
10Þór21-2918
11ÍBV21-1317
12KA21-1417
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.