Fotbolti.net
30.10.26 - 15:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Liverpool gæti fengið Araujo á afslætti

Liverpool gæti fengið Araujo á afslætti
Canon

Mynd: EPA

Í dag er fjallað um að Liverpool geti fengið Ronald Araujo frá Barcelona á afslætti.

Úrúgvæinn er á láni hjá Liverpool og hefur heillað stuðningsmenn með frammistöðu sinni fyrstu vikurnar og mánuðina á Anfield. Mikil ánægja er með Araujo og möguleiki á því að félagið sé tilbúið að klára kaup á honum.

Liverpool er með kaupmöguleika í lánssamningnum, getur klárað kaupin með 47 milljóna punda tilboði.

Í dag er hins vegar fjallað um það í enskum miðlum að Liverpool geti samið um lægri upphæð.
Bassey inn og Martínez út hjá Man Utd?
TENGT EFNI

Bassey inn og Martínez út hjá Man Utd?

Samkvæmt heimildum TeamTalk hefur Barcelona sett sig í samband við Liverpool um möguleikann á því að enska félagið klári fyrr kaup á Araujo og með því geti Barcelona sjálft farið á markaðinn og skoðað möguleika á að styrkja sinn hóp.

Barcelona er orðað við Lisandro Martínez, miðvörð Manchester United, en Barcelona er sagt í leit að örvfættum miðverði.

Araujo er 27 ára og getur bæði spilað sem hægri bakvörður og miðvörður.
Liverpool gæti fengið Araujo á afslætti
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.