Fotbolti.net
02.10.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ronaldo málið truflaði ekki leikmenn

Ronaldo málið truflaði ekki leikmenn
Canon

Mynd: EPA

Það hefur verið mikið rætt og ritað um Cristiano Ronaldo undanfarið en hann yfirgaf herbúði Portúgals eftir ósætti við landsliðsþjálfarann Jorge Jesus.

Hann var því ekki með þegar Portúgal vann 4-2 sigur á Danmörku í þriðju umferð Þjóðadeildarinnar í gær.
Jesus um Ronaldo: Mun útskýra allt
TENGT EFNI

Jesus um Ronaldo: Mun útskýra allt

Leikmenn voru spurðir að því eftir leikinn hvaða áhrif ákvörðun Ronaldo hafi haft á hópinn.

„Við reynum að halda okkur fyrir utan þetta mál. Við einbeitum okkur að leiknum og þetta var frábær frammistaða," sagði Vitinha.

„Þetta hefur engin áhrif á okkur. Við viljum vinna alla leiki. Við gerðum það," sagði Goncalo Ramos.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.