Fotbolti.net
02.10.26 - 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Subway

Þjóðadeildin um helgina - Ítalía heimsækir Frakkland

Þjóðadeildin um helgina - Ítalía heimsækir Frakkland
Canon

Mynd: EPA

Þriðja umferðin í Þjóðadeildinni heldur áfram um helgina. Það er spennandi leikur í kvöld þar sem Frakkland fær Ítalíu í heimsókn. Frakkar eru með sex stig en Ítalía þrjú í riðli eitt.

Belgía og Tyrkland mætast í sama riðli. Belgía er með þrjú stig en Tyrkland án stiga. Þá er einnig spilað í riðli fjögur í B-deild. Þar er Svíþjóð með sex stig, Bosnía fjögur, Pólland eitt og Rúmenía án stiga.

England heimsækir Króatíu og Tékkland heimsækir Spán á morgun. Spánn er með sex stig, England þrjú, Króatía þrjú og Tékkland án stiga.

Þá geta línur farið að skýrast þegar fjórða umferðin í tveimur riðlum í A-deild fer fram. Þá verður athyglisverður leikur þar sem lærisveinar Heimis Hallgrímssonar í Írlandi mæta Ísraelum. Írland vann fyrri leikinn 3-0.
föstudagur 2. október

Þjóðadeildin A
18:45 Belgía - Tyrkland
18:45 Frakkland - Ítalía

Þjóðadeildin B
18:45 Bosnía - Svíþjóð
18:45 Ungverjaland - Georgía
18:45 Pólland - Rúmenía
18:45 Úkraína - Norður Írland

Þjóðadeildin C
14:00 Kasakstan - Moldova
16:00 Kýpur - Armenia
16:00 Lettland - Svartfjallaland
18:45 Færeyjar - Slóvakía

laugardagur 3. október

Þjóðadeildin A
16:00 Króatía - England
18:45 Spánn - Tékkland

Þjóðadeildin B
18:45 Norður Makedónía - Skotland
18:45 Sviss - Slóvenía

Þjóðadeildin C
13:00 Finnland - Albanía
16:00 Belarús - San Marino
16:00 Eistland - Lúxemborg

sunnudagur 4. október

Þjóðadeildin A
18:45 Grikkland - Þýskaland
18:45 Holland - Serbía
18:45 Portúgal - Noregur
18:45 Wales - Danmörk

Þjóðadeildin B
16:00 Kósóvó - Austurríki
18:45 Írland - Ísrael

Þjóðadeildin D
13:00 Aserbaídsjan - Litáen
16:00 Malta - Andorra
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.