Zlatan Ibrahimovic er á leið í burtu frá Bandaríkjunum eftir tvær leiktíðir hjá LA Galaxy í MLS deildinni.
Zlatan gaf í skyn á dögunum að hann væri á leið til Spánar en sögur frá Spáni segja það hafa verið markaðsbrella hjá Svíanum.
Zlatan gaf í skyn á dögunum að hann væri á leið til Spánar en sögur frá Spáni segja það hafa verið markaðsbrella hjá Svíanum.
Marca greinir frá því að líklegasta niðurstaðan sé endurkoma til AC Milan en Milan leitar að framherja þessa dagana.
Þá er ein sagan þannig að Bologna ætli að bjóða Zlatan átta milljónir punda í árslaun til að lokka Svíann til liðsins.
Í slúðurpakka dagsins kom fram að Zlatan væri mögulega aftur á leið til Manchester United.
Athugasemdir