Fotbolti.net
02.11.26 - 11:35
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net

„Getur komið þeim upp um heila tröppu í viðbót“

Emil Atlason.

Emil Atlason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta er púsl sem bara nákvæmlega passar," segir Elvar Geir Magnússon í útvarpsþættinum Fótbolta.net þegar rætt er um félagaskipti Emils Atlasonar í Fram.

Þessi reyndi sóknarmaður skrifaði undir hjá Fram og var kynntur um helgina.
Emil Atla í Fram (Staðfest)
TENGT EFNI

Emil Atla í Fram (Staðfest)

„Maður heyrir að Emil hafi verið spenntur fyrir því að spila undir stjórn Rúnars Kristinssonar, vildi fara til Rúnars. Og Rúnar var með Emil efstan á blaði hjá sér yfir mann sem hann vildi fá í framlínuna."

Tómas Þór Þórðarson er sammála því að Emil sé einmitt leikmaðurinn sem Fram hafi vantað.

„Þar sem þeir eru að gera einhver jafntefli í þessum stærri leikjum. Emil Atlason getur fleytt þeim upp í sigurinn, komið þeim upp um hálfa til heila tröppu í viðbót. Svo framarlega sem hann haldist heill, þá náttúrulega eru fáir jafn traustir markaskorarar í þessari deild," segir Tómas Þór.

Emil er 33 ára og lék með Stjörnunni í sjö ár, þar sem hann skoraði 61 deildarmark og varð meðal annars markakóngur Bestu deildarinnar árið 2023.

„Það er mikið gleðiefni að Emil hafi valið að koma til okkar í Fram, enda eftirsóknarverður leikmaður sem flest lið í deildinni myndu vilja hafa í sínum röðum. Emil kemur inn í hópinn með gríðarlega reynslu, markanef og sterkan karakter. Emil mun koma til með að vera mjög góð viðbót við annars sterkan leikmannahóp okkar og verður spennandi að fylgjast með honum í Fram treyjunni,“ stóð í tilkynningu Framara um helgina.
„Getur komið þeim upp um heila tröppu í viðbót“
Canon

Mynd: Fram

Útvarpsþátturinn - Ljósin kveikt og allt á iði á skrifstofunum

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.