Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 02. desember 2021 17:42
Brynjar Ingi Erluson
Koulibaly ekki meira með á þessu ári
Kalidou Koulibaly missir af leikjum Napoli í desember og byrjun janúar
Kalidou Koulibaly missir af leikjum Napoli í desember og byrjun janúar
Mynd: EPA
Senegalski varnarmaðurinn Kalidou Koulibaly verður frá næstu fimm til sex vikurnar vegna meiðsla aftan í læri.

Koulibaly fór meiddur af velli á 80. mínútu er Napoli gerði 2-2 jafntefli við Sassuolo í gær og fór hann í myndatöku í dag.

Þar kom í ljós tognun aftan í læri og verður hann ekki með liðinu næstu fimm eða sex vikur.

Þetta er gríðarlegt áfall fyrir Napoli, sem er á toppnum, en Koulibaly hefur verið einn besti leikmaður deildarinnar á þessu tímabili og var meðal annars valinn leikmaður mánaðarins fyrir september.

Napoli er í efsta sæti með 36 stig, stigi meira en Milan sem er í öðru sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner