Arsenal og Chelsea mætast í seinni leik liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins í kvöld. Liðin mætast á Emirates en Arsenal leiðir 3-2 eftir sigur á Stamford Bridge.
Byrjunarliðin eru komin inn en Bukayo Saka og Martin Ödegaard eru ekki með Arsenal í kvöld. Noni Madueke og Eberechi Eze eru í byrjunarliðinu í þeirra stað.
Fréttirnar af Ödegaard koma eftir að ljóst var að MIkel Merino þurfi að gangast undir aðgerð, það er því þunnskipað af miðjumönnum í hópnum. Kepa er í markinu eins og venjulega í bikarkeppnunum.
Cole Palmer og Estevao eru meðal leikmanna sem byrja á bekknum hjá Chelsea og Reece James er ekki í hópnum.

Arsenal: Kepa, Timber, Saliba, Gabriel, Hincapie, Zubimendi, Rice, Eze, Madueke, Gyokeres, Martinelli.
Varamenn: Raya, Mosquera, White, Jesus, Norgaard, Trossard, Havertz, Calafiori, Lewis-Skelly.
Chelsea: Sanchez, Gusto, Fofana, Chalobah, Hato, Cucurella, Caiceod, Santos, Fernandez, Delap, Pedro.
Varamenn: Sharman-Lowe, Acheampong, Badiashile, Holland, Palmer, Estevao, Garnacho, Guiu, Mheuka.
Athugasemdir