Arsenal tekur á móti Chelsea í kvöld í seinni undanúrslitaleik liðanna í Carabao deildabikarnum. Arsenal leiðir einvígið 3-2 eftir sigur á Brúnni.
Bukayo Saka, leikmaður Arsenal, meiddist á vöðva í kringum mjöðmina í upphitun fyrir 4-0 sigurinn gegn Leeds á laugardaginn og gat ekki tekið þátt í leiknum.
Bukayo Saka, leikmaður Arsenal, meiddist á vöðva í kringum mjöðmina í upphitun fyrir 4-0 sigurinn gegn Leeds á laugardaginn og gat ekki tekið þátt í leiknum.
The Sun segir að Saka missi af leiknum í kvöld en meiðslin séu ekki alvarleg og miðað sé við að hann verði orðinn klár í Lundúnaslaginn gegn Tottenham þann 22. febrúar. Mögulega verði hann klár fyrr.
Eftir leikinn gegn Chelsea í kvöld mun Arsenal taka á móti Sunderland í ensku úrvalsdeildinni á laugardag og leika svo útileik gegn Brentford í næstu viku.
Þá mun Arsenal leika gegn Wigan í FA-bikarnum og svo er komið að leikjum gegn Wolves og Tottenham.
Arsenal treystir á að Noni Madueke standi sig í fjarveru Saka en hann kom inn í byrjunarliðið gegn Leeds eftir að Saka meiddist í upphitun. Hann lagði upp og skoraði í 4-0 sigrinum.
Athugasemdir

