Sindri Kristinn Ólafsson gæti verið á leið til Svíþjóðar. Frá þessu segir Sigurður Gísli Bond, einn af sérfræðingum Dr. Football, í færslu á X en tíðindin hafa hvorki fengist staðfest né hefur þeim verið neitað.
Kærasta Sindra, landsliðskonan Guðrún Arnardóttir, samdi í síðasta mánuði við Hammarby og segir Sigurður að Sindri sé að flytja út til hennar.
Markmaðurinn hjálpaði Keflavík að komast upp úr Lengjudeildinni á síðasta tímabili og framlengdi hann samning sinn við félagið í vetur. Sindri var fenginn til Keflavíkur frá FH eftir að Ásgeir Orri Magnússon sleit krossband síðasta vor.

Fótbolti.net hefur sent fyrirspurn á Sindra sjálfan og framkvæmdastjóra fótboltadeildar um hvort Sindri sé á förum erlendis.
#HeimavinnaGaflarans
— Sigur?ur Gísli Bond (@SigurdurGisli) February 3, 2026
Ástin enn ósigruð.
Eins og við sem fylgjumst með kvennaboltanum vitum þá er Guðrún Arnardóttir á leið til Hammarby. Það þýðir að Sindri Kristinn Ólafsson markvörður Keflavíkur og kærasti Guðrúnar fer með henni út og finnur sér lið í Svíþjóð. Áfall fyrir Kef… pic.twitter.com/5xZnzrMFY2
Athugasemdir