Framkvæmdastjóri fótboltadeildar Keflavíkur hefur svarað fyrirspurn Fótbolta.net varðandi Sindra Kristin Ólafsson. Hann var spurður út í mögulega flutninga markmannsins til Svíþjóðar og hvort eitthvað samtal hefði átt sér stað milli Sindra og Keflavíkur.
Fótbolti.net fjallaði fyrr í dag um X færslu sem Sigurður Gísli Bond birti í dag en þar sagði að Sindri væri að flytja til Svíþjóðar þar sem kærasta hans, Guðrún Arnardóttir, býr þar og spilar með Hammarby.
„Sindri er nýbúinn að gera við okkur þriggja ára samning og það er fullur fókus hjá honum á Bestu deildina. Vissulega býr kærastan hans í Svíþjóð og skiljum við vel ef hann vill ferðast eitthvað til hennar," segir í svari Ragnars Arons Ragnarssonar við fyrirspurn Fótbolta.net.

Fótbolti.net forvitnaðist einnig um stöðuna á Ásgeiri Orra Magnússyni sem átti að vera aðalmarkvörður Keflavíkur á síðasta tímabili en varð fyrir því óláni að slíta krossband og í kjölfarið var Sindri Kristinn fenginn aftur til félagsins eftir að hafa spilað með FH tímabilin á undan.
„Ásgeir er búinn að vera lenda í smávægilegum meiðslum eftir að hann snéri aftur en við gerum ráð fyrir því að hann byrji að æfa með okkur á fullu aftur í næstu viku," segir Ragnar Aron.
Fótbolti.net sendi einnig fyrirspurn á Sindra en hann hefur ekki tjáð sig til þessa.
Athugasemdir