Fotbolti.net
03.02.26 - 12:30
Elvar Geir Magnússon

Howe: Tonali virkilega ánægður hjá Newcastle

Tonali vann deildabikarinn með Newcastle.

Tonali vann deildabikarinn með Newcastle.

Canon

Mynd: EPA

„Hann er virkilega ánægður hjá Newcastle. Það er erfitt fyrir mig að tala um hluti sem ég veit ekki mikið um," segir Eddie Howe um ítalska miðjumanninn Sandro Tonali.

Fjallað hefur verið um áhuga Arsenal á Tonali og þá er sagt að Newcastle gæti einnig fengið tilboð frá Chelsea og Manchester City í næsta glugga.

„Ég get bara talað um Sandro sem einstakling og leikmann, og hvernig hugarfar han er núna. Ég spjallaði við hann og hann er í góðum málum."

Tonali sagði sjálfur í nóvember að hann væri ánægður hjá Newcastle en það væri erfitt að fullyrða eitthvað um framtíðina.
Arsenal sýnir Tonali áhuga en hann er ekki til sölu
TENGT EFNI

Arsenal sýnir Tonali áhuga en hann er ekki til sölu

„Önnur félög munu alltaf hafa áhuga á okkar bestu leikmönnum. Þannig er bara raunveruleiki fótboltans. Við viljum halda hópnum saman og halda áfram að þróast," segir Howe.

Sagt er að Arsenal hafi sent Newcastle fyrirspurn í gær varðandi Tonali en Newcastle samstundis sagt að leikmaðurinn væri ekki til sölu.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.