Auknar líkur á að Guardiola hætti með City - Alonso, Maresca og Fabregas á lista - Rashford vill ekki snúa aftur til Man Utd
   þri 03. febrúar 2026 17:18
Kári Snorrason
Jakob Gunnar keyptur til Lyngby (Staðfest) - „Dreymdi um að feta í þeirra fótspor“
Jakob skrifaði undir samning til ársins 2030.
Jakob skrifaði undir samning til ársins 2030.
Mynd: Lyngby
Framherjinn skoraði sitt fyrsta mark fyrir aðallið Lyngby á dögunum.
Framherjinn skoraði sitt fyrsta mark fyrir aðallið Lyngby á dögunum.
Mynd: Lyngby
Jakob Gunnar Sigurðsson hefur gengið varanlega til liðs við danska félagið Lyngby og skrifað undir fjögurra ára samning.

Jakob er keyptur til Lyngby frá KR, en hann hefur leikið á láni með danska félaginu frá síðasta sumri. Hann hefur gert góða hluti með U19 ára liði Lyngby og skorað þar reglulega.

Nýverið skoraði hann jafnframt sitt fyrsta mark fyrir aðallið félagsins í æfingaleik.

Jakob er 18 ára framherji sem er uppalinn hjá Völsungi og KR keypti sumarið 2024. Hann kláraði tímabilið 2024 hjá Völsungi, hjálpaði liðinu að komast upp úr 2. deild og varð markahæsti leikmaður deildarinnar. Hann lék svo á láni hjá Þrótti fyrri hluta síðasta sumars áður en hann hélt út til Danmerkur.

„Mér líður virkilega vel með þetta. Markmiðið með láninu síðasta sumar var að það myndi leiða til varanlegs samnings. Ég kom hingað á reynslu árið 2023, þegar Kolbeinn Birgir Finnsson, Andri Lucas Guðjohnsen og Sævar Atli Magnússon voru hér. Síðan þá hef ég fylgst náið með liðinu og leikmönnunum. Mig dreymdi um að feta í þeirra íslensku fótspor,“ er haft eftir Jakobi á heimasíðu Lyngby.

Fótbolti.net ræddi við Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfara KR, fyrr í dag og var hann ánægður fyrir Jakobs hönd.

„Þetta er auðvitað frábært fyrir hann. Honum hefur liðið vel út í Lyngby frá því að hann fór út síðasta sumar. Hann hefur vaxið mikið. Þetta er mjög ánægjulegt fyrir hann og okkur. Þetta er mikil viðurkenning fyrir hann að þeir skuli kaupa hann. Hann hefur tekið mikil skref þarna.

Hann hefur verið mjög góður í 19 ára deildinni og hefur spilað með aðalliðinu þar sem hann hefur skorað og lagt upp. Þetta er frábært fyrir hann og auðvitað okkur þó að hann hafi verið stutt hérna. Það er alltaf ánægjulegt að sjá unga menn taka næsta skref. Það er ekkert sjálfgefið að gera það með glæsibrag.“

Athugasemdir
banner
banner
banner