Lyngby er samkvæmt heimildum Fótbolta.net búið að ná samkomulagi við KR um kaup á Jakobi Gunnar Sigurðssyni.
Unglingalandsliðsmaðurinn hefur verið á láni hjá danska félaginu frá síðasta sumri og hefur raðað inn mörkum fyrir U19 lið félagsins.
Á dögunum skoraði hann svo sitt fyrsta mark fyrir aðallið Lyngby í æfingaleik.

Jakob Gunnar er 18 ára framherji sem uppalinn er hjá Völsungi og KR keypti sumarið 2024. Hann kláraði tímabilið 2024 hjá Völsungi, hjálpaði liðinu að komast upp úr 2. deild og varð markahæsti leikmaður deildarinnar.
Hann var svo á láni hjá Þrótti fyrri hluta síðasta sumars. Hjá U19 liði Lyngby spilar Jakob undir stjórn Íslendingsins Michael John Kingdon. Valdimar Valdimarsson er markmannsþjálfari hjá félaginu.
Lyngby er mikið Íslendingafélag. Freyr Alexandersson var þjálfari liðsins fyrir nokkrum árum síðan og fékk íslenska leikmenn til sín. Ísak Snær Þorvaldsson er leikmaður Lyngby, er þar á láni frá Rosenborg.
Athugasemdir