Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 03. apríl 2021 15:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Einkunnir Chelsea og WBA: Pereira bestur - Tveir fá 5 hjá Chelsea
Mynd: Getty Images
WBA vann óvæntan 2-5 útisigur á Chelsea í fyrsta leik dagsins. Fyrir leikinn var Chelsea liðið taplaust undir stjórn Tomas Tuchel; tíu sigrar og fjögur jafntefli. Liðið hafði þá einungis fengið á sig tvö mörk í þessum leikjum.

Thiago Silva fékk að líta rauða spjaldið á 29. mínútu leiksins og við það snerist leikurinn. Silva og Jorginho fá lægstu einkunn hjá Chelsea eða fimm. Marcos Alonso og Mason Mount fá hæstu einkunn eða sjö.

Mattheus Pereira, sem skoraði tvö mörk, fær níu í einkunn í liðið WBA. Callum Robinson sem kom inn á og skoraði tvö fær átta í einkunn.

Markaskorarar í tímaröð: Christian Pulisic, Matheus Pereira (x2), Callum Robinson, Mbaye Diagne, Mason Mount og Robinson aftur.

Einkunnir Sky Sports:
Chelsea: Mendy (6), Alonso (7), Silva (5), Zouma (6), Azpilicueta (6), James (6), Jorginho (5), Kovacic (6), Pulisic (6), Werner (6), Ziyech (6)

Varamenn: Christensen (6), Mount (7), Havertz (6)

West Brom: Johnstone (7), Furlong (8), Bartley (8), Ajayi (8), O'Shea (7), Yokuslu (8), Phillips (7), Townsend (7), Maitland-Niles (6), Pereira (9), Diagne (7)

Varamenn: Robinson (8), Livermore (6), Ivanovic (6)

Maður leiksins: Matheus Pereira
Athugasemdir
banner
banner