Fotbolti.net
28.11.26 - 14:28
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Tíu leikmenn Blackburn unnu Charlton

Andri hefur ekki skorað í síðustu tveimur leikjum

Andri hefur ekki skorað í síðustu tveimur leikjum

Canon

Mynd: Blackburn Rovers

Andri Lucas Guðjohnsen og félagar hans í Blackburn Rovers unnu 1-0 sigur á Charlton Athletic í ensku B-deildinni í dag.
Andri var í byrjunarliði Blackburn en hafði ekki úr mörgum marktækifærum að moða í leiknum.

Hann var þó öflugur í spilinu hjá sínum mönnum, sem þurftu að sýna mikla þolinmæði áður en þeim tókst að tryggja sér sigurinn.

Þegar þrettán mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma skoraði Kristi Montgomery sigurmarkið. Todd Cantwell missti þá boltann til Montgomery fyrir utan vítateiginn, en hann færði boltann yfir á hægri fótinn og skrúfaði honum glæsilega í hægra markhornið.

Fimm mínútum síðar dró til tíðinda þegar Sean McLoughlin fékk að líta rauða spjaldið eftir að hafa farið klaufalega aftan í leikmann Charlton sem var kominn á mikla ferð á kantinum.

Þrátt fyrir að vera manni færri tókst Blackburn að halda fengnum hlut og tryggja sér stigin þrjú. Liðið er nú komið upp í áttunda sæti deildarinnar með 28 stig.

Andri er með ellefu deildarmörk á tímabilinu, en ekki tekist að skora í síðustu tveimur.

Lincoln og Wolves gerðu þá markalaust jafntefli, en Úlfarnir misstu þar af tækifærinu til að hirða toppsætið af Middlesbrough.

Wolves situr í öðru sæti með 35 stig, jafnmörg og Boro, en með lakari markatölu.

Preston og Norwich skildu einnig jöfn, 1-1.

Blackburn 1 - 0 Charlton Athletic
1-0 Kristi Montgomery ('77 )
Rautt spjald: Sean McLoughlin, Blackburn ('82)

Lincoln City 0 - 0 Wolves

Preston NE 1 - 1 Norwich
1-0 Delano Burgzorg ('74 , víti)
1-1 Sam Field ('86 )

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough18+1235
2Wolves18+1235
3Stoke City17+835
4Birmingham17+1532
5West Brom17+1032
6Southampton18+1831
7QPR17+728
8Blackburn18+128
9Swansea17+327
10Sheffield Utd17+626
11Portsmouth17+326
12Norwich18+825
13West Ham17+1324
14Wrexham17-122
15Charlton Athletic18-820
16Bristol City17-1019
17Cardiff City17-518
18Millwall17-618
19Bolton17-1118
20Lincoln City18-1616
21Preston NE18-1215
22Watford17-1515
23Burnley17-1111
24Derby County17-2110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.