Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
Linta: Ef orkan er ekki til staðar skiptir taktík ekki máli
Kristófer Ingi: Hann er örugglega búinn að vera okkar besti maður
Hefur mikla trú á leikstíl ÍBV - „Gekk ekki upp í fyrstu hjá Víkingum"
Viktor Jóns: Ég tók eftir því að varnarlínan var helvíti framarlega
Lárus Orri: Þetta er tvöfalt, stigin og frammistaðan
Jökull: Menn eru bara sofandi
Ólafur Ingi: Til skammar og hrikalegt fyrir Eyjamenn að þetta sé staðan
Óskar Hrafn: Þú hefur margt fyrir þér í því
Stefán Árni: Unun að fá að deila velli með honum
Hemmi ósáttur: Brandari hvað Finnur og Ástbjörn komast upp með í 90 mínútur
Bryndís Rut hreinskilin eftir stórt tap: „Markmiðið er að halda okkur í deildinni“
Keflavík rúllaði yfir Tindastól – „Geggjað að taka svona sigur“
Hetjan Hallgrímur æfði ekkert í vikunni: Ákvað að svara þegar ég skoraði
Haddi: Róar taugarnar hjá mér
Siggi Höskulds lýsir vonbrigðunum: Nei það er ekki hægt
Gunnar Heiðar ósáttur eftir sigur: Er ekkert eðlilega óánægður með þetta
Nenad: Ég ætla ekki að tjá mig
Jóhann Birnir ósáttur með rauða spjaldið - „Fannst hann bara sækja brotið"
Venni: Ég var aldrei í rónni
Elfar Árni: Spennandi að sjá hvort einhver nýr verði á bekknum í næsta leik
   sun 03. maí 2026 19:23
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Linta: Ef orkan er ekki til staðar skiptir taktík ekki máli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net ræddi við Aleksandar Linta, þjálfara ÍBV, eftir tap liðsins gegn Breiðabliki í Bestu deildinni í dag.

Lestu um leikinn: ÍBV 1 -  2 Breiðablik

„Ég er auðvitað svekktur, maður þarf að vera svekktur eftir alla tapleiki, þess vegna er maður í þessari íþrótt. Ég þarf að horfa aftur á leikinn til að sjá hvað við þurfum að gera betur en fyrstu viðbrögð eru að við gátum fengið meira út úr þessum leik," sagði Linta.

„Taktík hjálpar en ef orkan er ekki til staðar skiptir taktík ekki máli. Ég gerði nokkrar breytingar út af meiðslum og ég vil nýta alla leikmennina. Ég er með 22 manna hóp og ég hef trú á öllum og þeir munu allir fá tækifæri, það fer eftir því hversu vel þeir spila."

Næstu leikir liðsins eru gegn KA á Akureyri og Víkingi í Eyjum.

„VIð höfum ekki verið heppnir með leikjaniðurröðunina. Við munum spila á móti 5-6 bestu liðum Íslands í fyrstu 6-7 leikjunum. Svona er þetta og við verðum að berjast í gegnum það."
Slapp
banner
banner