Fotbolti.net
03.05.26 - 17:07
Elvar Geir Magnússon

Mainoo: Tilbúinn til að deyja á vellinum fyrir Carrick

Kobbie Mainoo.

Kobbie Mainoo.

Canon

Mynd: EPA

Miðjumaðurinn Kobbie Mainoo skoraði sigurmark Manchester United gegn Liverpool í dag. Sigurinn 3-2 innsiglaði þátttöku United í Meistaradeildinni á næsta tímabili.

„Það er gleðilegt að hafa náð að snúa tímabilinu við, allir leikmenn og stjórinn eiga hrós skilið. Við þurfum samt að klára tímabilið á öflugan hátt. Við erum ekki saddir," segir Mainoo.
England: Man Utd hafði betur í stórleiknum og innsiglaði Meistaradeildina
TENGT EFNI

England: Man Utd hafði betur í stórleiknum og innsiglaði Meistaradeildina


Mainoo hefur leikið stórt hlutverk undir stjórn Michael Carrick og augljóst að hann vill halda stjóranum.

„Það er alltaf erfitt þegar maður er ekki að spila. Ég reyndi bara að hugsa um framtíðina. Carrick hefur spilað stóran hluta í þessu, allt sjálfstraustið sem hann hefur fært leikmönnum. Maður vill fylgja honum, berjast fyrir hann og maður er tilbúinn að deyja fyrir hann á vellinum."

Markið hjá Mainoo var hans fyrsta fyrir aðalliðið á Old Trafford.

„Ég sá nokkra fjölskyldumeðlimi, það blessun að spila og blessun að skora. Ég er ánægður með að vera á þessum stað með félaginu."

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City3+59
2Arsenal3+59
3Hull City3+37
4Chelsea3+16
5Brentford3+35
6Liverpool3+25
7Newcastle3+25
8Everton3+25
9Leeds3+15
10Brighton3+34
11Man Utd3+14
12Sunderland304
13Crystal Palace3-43
14Ipswich Town3-43
15Bournemouth3-12
16Nott. Forest3-12
17Aston Villa3-51
18Tottenham3-51
19Fulham3-30
20Coventry3-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.