Kobbie Mainoo, miðjumaður Manchester United, hefur skrifað undir nýjan samning til 2031 og bundið enda á óvissu um framtíð sína.
Mainoo varð 21 árs í þessum mánuði og skrifaði undir samning á Carrington æfingasvæðinu í gær.
Mainoo varð 21 árs í þessum mánuði og skrifaði undir samning á Carrington æfingasvæðinu í gær.
„Manchester United hefur alltaf verið mitt heimili, þetta félag skiptir fjölskyldu mína öllu máli. Ég hef alist upp og séð áhrifin sem félagið hefur haft á borgina og geri mér grein fyrir ábyrgðinni sem fylgir því að klæðast treyjunni," segir Mainoo.
Mainoo átti frábæran leik fyrir United í sigrinum gegn Brentford í vikunni og átti einnig stórleik í sigrinum gegn Chelsea nýlega. Hann hefur leikið fantavel síðan Michael Carrick gaf honum traustið.
??????? One of our own.
— Manchester United (@ManUtd) April 30, 2026
Kobbie Mainoo is here to stay ???? pic.twitter.com/GQi2uJaqQG




