Fotbolti.net
03.05.26 - 21:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Spánn: Real Madrid frestaði titilfögnuði Barcelona

Spánn: Real Madrid frestaði titilfögnuði Barcelona
Canon

Mynd: EPA

Real Madrid heimsótti Espanyol í spænsku deildinni í kvöld. Liðið þurfti á sigri að halda til að halda mjög litlum vonum á lofti um að vinna spænska titilinn.
Espanyol fékk fleiri færi í fyrri hálfleik en staðan var markalaus í leikhléi. Vinicius Junior kom Real yfir eftir laglegt samspil við Gonzalo Garcia.

Hann bætti síðan öðru markinu við með frábæru skoti eftir laglega hælsendingu frá Jude Bellingham og innsiglaði sigurinn.

Espanyol er staðsett í Barcelona en Real Madrid mun mæta aftur þangað um næstu helgi þegar liðið heimsækir Barcelona. Ef Barcelona nær í jákvæð úrslit mun liðið gulltryggja sér titilinn.

Real er í 2. sæti, ellefu stigum á eftir Barcelona þegar 12 stig eru eftir í pottinum. Espanyol er í 13. sæti með 39 stig.

Betis vann miikilvægan sigur á Real Oviedo fyrir Evrópubaráttuna en Oviedo nálgast fall. Betis er í 5. sæti með 53 stig en Oviedo á botninum með 28 stig, átta stigum frá öruggu sæti.

Þá unnu Getafe og Celta Vigo einnig mikilvæga sigra í Evrópubaráttunni.

Getafe 0 - 2 Rayo Vallecano
0-1 Sergio Camello ('38 )
0-1 Mauro Arambarri ('63 , Misnotað víti)
0-2 Randy Nteka ('73 )

Celta 3 - 1 Elche
1-0 Hugo Alvarez Antunez ('14 )
2-0 Iago Aspas ('30 )
2-1 Andre Silva ('82 , víti)
3-1 Borja Iglesias ('85 )

Espanyol 0 - 2 Real Madrid
0-1 Vinicius Junior ('55 )
0-2 Vinicius Junior ('66 )

Betis 3 - 0 Oviedo
1-0 Cucho Hernandez ('22 )
2-0 Abde Ezzalzouli ('45 )
3-0 Cucho Hernandez ('58 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Barcelona4+1512
2Alaves4+710
3Sevilla5+210
4Real Madrid4+79
5Betis409
6Deportivo4+38
7Atletico Madrid4+17
8Osasuna4-17
9Real Sociedad5-27
10Athletic4+16
11Levante405
12Espanyol4+14
13Racing Santander4-14
14Vallecano4-34
15Getafe4-34
16Celta5-33
17Villarreal4-22
18Malaga4-62
19Elche4-71
20Valencia5-91
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.